Samkaup leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í sumarstarf á fjármálasvið fyrirtækisins. Starfsmaður mun starfa á aðalskrifstofu Samkaupa, Hagasmára 1, 201 Kópavogi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan maí og starfstímanum lýkur um mánaðarmót ágúst/september.
Starfssvið:
- Færsla fjárhagsbókhalds
- Afstemmingar
- Reikningagerð
- Greiðsla og innheimta reikninga
- Skráning og frágangur
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af gjaldkerastörfum og/eða bókhaldsstörfum æskileg
- Reynsla og þekking af bókhaldskerfum kostur
- Reynsla af notkun Business Central kostur
- Skipulagshæfni
- Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
Annað:
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörg Yngvadóttir, forstöðumaður fjármála og reikningshalds, thorbjorg.yngvadottir@samkaup.is
Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins 2022 og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.
Samkaup rekur um 70 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, 10-11, Extra og Prís. Hjá félaginu starfa um 1500 starfsmenn í rúmlega 700 stöðugildum.
Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.