Við leitum eftir jákvæðum, duglegum og góðhjörtuðum einstaklingum til að vera þátttakandi í að móta góða þjónustu og koma henni vandlega til skila. Í Árskógum er frábær starfshópur, skemmtilegir þjónustunotendur og hér eru engir dagar eins. Árskógar er nýlegur íbúðakjarni í Breiðholti og er öll aðstaða til fyrirmyndar.
Um er að ræða 100% vaktavinnu sem hefst í byrjun júní (dagvaktir, kvöldvaktir, næturvaktir og helgarvaktir).
Veita stuðning sem miðar að því að efla félagsfærni og sjálfstæði, tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu.
Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og vera með hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
ellen.bjorg.bjornsdottir@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.