Krambúðin á Tjarnabraut leitar að jákvæðu og áreiðanlegu starfsfólki í hlutastarf. Vinnutími er aðallega á kvöldin á virkum dögum, með möguleika á aukinni vinnu eftir þörfum.
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.
Krambúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.
Helstu verkefni:
- Almenn verslunarstörf
- Vöruframsetning og áfylling
- Afgreiða og þjónusta viðskiptavini
- Þrif og frágangur
Hæfniskröfur:
- Jákvætt viðmót og þjónustulund
- Skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og áræðni
- Sjálfstæði
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur en ekki skilyrði
Annað:
- Heilsustyrkur til starfsmanna í boði
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.
- Velferðarþjónusta Samkaupa
Frekari upplýsingar veitir Guðni Rúnar Gefnarson verslunarstjóri gudni.gefnarson@krambudin.is
Samkaup hf. hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins 2022 og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.
Samkaup hf. rekur um 70 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, 10-11, Extra og Prís. Hjá félaginu starfa um 1500 starfsmenn í rúmlega 700 stöðugildum.
Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.