Árskóli óskar eftir að ráða í stöðu skólaliða í 80%-100% starfshlutfalli frá 1. ágúst 2026. Í starfinu felst gæsla nemenda og þrif á húsnæði skólans. Skólaliði tekur þátt í því uppeldis- og skólastarfi sem fer fram innan skólans. Skólaliðar gæta og leiðbeina nemendum í margskonar aðstæðum inni sem úti. Skólaliðar sinna daglegri ræstingu og halda húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri.
Árskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur sem búa á Sauðárkróki, í Hegranesi, á Reykjaströnd og á Skaga. Í Árskóla vinnur sérmenntað starfsfólk saman að því að mæta ólíkum einstaklingum með krefjandi verkefnum við hæfi hvers og eins. Starfsemi Árskóla fer fram í húsnæði skólans við Skagfirðingabraut. Í Árskóla eru rúmlega 390 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er deildaskiptur í yngsta stig, miðstig og unglingastig.
Hæfniskröfur
Jákvæðni og áhugi á starfi með börnum. Skólaliðar eru í mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir barna, þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist fljótt og vel við þegar þörf er á. Góð samstarfs- og samskiptafærni, sem og umhyggja eru miklir kostir í starfinu. Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa til að bera góða færni í mannlegum samskiptum, eru með ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Hreint sakavottorð skv. lögum um grunnskóla.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Atli Víðir, húsvörður, atli@arskoli.is, 822 1150.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.