Í Glerárskóla er laus til umsóknar staða skólaliða.
Um er að ræða ótímabundna stöðu um 80% með vinnutíma frá 7:50-14:00.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starf skólaliða er fjölbreytt og felur m.a. í sér gæslu og aðstoð við nemendur í starfi og leik á vegum skólans, aðstoð í mötuneyti, ræstingar og margt fleira. Skólaliðar starfa undir verkstjórn umsjónarmanns húsa og í samstarfi við alla aðra starfsmenn skólans.
Helstu verkefni skólaliða eru m.a.:
Hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf umsækjanda og menntun, auk þeirra verkefna sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi starfsfólks með stuðning í grunnskóla.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar - Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Skúladóttir skólastjóri eyrun@akmennt.is og í síma 461-2666.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuanddyri Ráðhússins.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026.