Leikskólakennari eða leikskólaliði óskast til starfa í leikskólann Ösp, sem er staðsettur í hjarta Fellahverfisins. Við leikskólann starfar metnaðarfullur starfsmannahópur með margvíslega menntun og reynslu, sem nýtir fjölbreyttar leiðir til að styðja við almennan þroska barna. Við hlúum að börnunum í samræmi við þarfir hvers og eins með kærleika og umburðarlyndi að leiðarljósi.
Sjálfsprottinn leikur er meginnámsleið leikskólans, þar sem virk þátttaka starfsfólks spilar stórt hlutverk í að styðja við leik og nám barna. Lögð er áhersla á auðugt málumhverfi, vellíðan og starfsaðferðir sem mæta þörfum fjölbreytileika barnahópsins í leikskólanum, sem er með ríkan tungumála- og menningarbakgrunn.
Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi, þar sem enginn dagur er eins og við sköpum ný ævintýri á hverjum degi. Það er mikið og gott samstarf milli leik- og grunnskóla í Fellahverfi og vinnum við markvisst með mál og læsi í samvinnu við leikskólann Holt og Fellaskóla.
Þetta er fullt starfið og er laust í ágúst 2026.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Fríðindi í starfi eru:
Ráðningarform: tímabundin ráðning í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Halldóra Sigtryggsdóttir, leikskólastjóri
Sími 4113310
Tölvupóstur osp@reykjavik.is
Leikskólinn Ösp, Iðufell 16, 111 Reykjavík