Arctic Adventures leitar að öflugum háskólanema í sumarstarf til að sinna fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum á fjármálasviði félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn bókhaldsstörf
- Færsla fjárhagsbókhalds í rafrænum lausnum
- Afstemmingar og frávikagreiningar
- Aðstoð við mánaða -og ársloka uppgjör ásamt viðeigandi afstemmingum
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólanemi í námi sem nýtist í starfi
- Áhugi á bókhaldi
- Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta, þekking á Business Central kostur
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Sveigjanleiki og færni til að vinna undir álagi
- Frumkvæði, fagmennska og metnaður í starfi
- Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar
Aðrar upplýsingar:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristrún Steinarsdóttir, kristrun@adventures.com