Hamraskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-7.bekk, staðsettur í Grafarvogi. Í skólanum eru rúmlega 240 nemendur og um 50 starfsmenn. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði leiðsagnarnáms og er heilsueflandi skóli.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu leiðsagnarnáms.
Hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Menntun og hæfni til heimilisfræðikennslu.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður.
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Nánari upplýsingar:
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Bergsdóttir skólastjóri í síma 411- 6800 eða með því að senda fyrirspurnir á netfangið Anna.Bergsdottir@reykjavik.is
Heimasíða Hamraskóla