Laus er til umsóknar 60% staða kennara í heimilisfræði fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026 og um ótímabundna ráðningu er að ræða.
Naustaskóli leitar að metnaðarfullum og skapandi heimilisfræðikennara til að taka þátt í öflugu skólastarfi. Kennarinn mun leiða nemendur í gegnum verklega og bóklega kennslu í heimilisfræði með áherslu á heilbrigðan lífsstíl, sjálfbærni og skapandi hugsun.
Í Naustaskóla er lögð áhersla á jákvæðan aga, teymiskennslu, námsaðlögun og faglegt samstarf. Kennarar kenna saman á opnum svæðum og skapa saman lærdómssamfélag með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda.
Einkunnarorð Naustaskóla eru „Námsaðlögun- Athvarf- Umhyggja – Samvinna – Táp og fjör – Allir með!“
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.naustaskoli.is
Helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda og sýn hans á kennarastarfið og hvernig hann sér starf sitt sem kennara geta þróast.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Björnsdóttir skólastjóri í síma 460-4101, netfang dis@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2026