Við erum reglulega að leita að öflugu og hæfileikaríku fólki í fjölbreytt störf innan okkar raða. Hægt er að leggja inn umsókn um tímabundið afleysingarstarf og eru þær umsóknir einungis skoðaðar ef um er að ræða tímabundin störf í allt að 6 mánuði.
Þrátt fyrir að eiga inni umsókn um tímabundið afleysingastarf, þá hvetjum við þig til að fylgjast vel með auglýstum störfum á umsóknarvef Akureyrarbæjar og senda sérstaklega umsókn inn á auglýst starf.
- Umsóknir um tímabundin afleysingastörf eru ekki teknar með við úrvinnslu á auglýstum störfum.
- Umsóknir eru virkar í 3 mánuði leiði þær ekki til ráðningar.
- Leiði umsókn um tímabundið afleysingastarf til ráðningar verður umsókn sjálfkrafa óvirk.
- Ef umsækjandi þiggur starf um tímabundið afleysingarstarf en kýs að hafa virka umsókn í kerfinu, skal sækja um að nýju.
- Ef ekki hefur komið til ráðningar innan þriggja mánaða og enn er óskað eftir starfi, þarf að sækja um á ný.
- Ef umsækjandi kýs að umsókn verði eytt innan þess tíma þá vinsamlega sendið tölvupóst á mannaudsdeild@akureyri.is
- Stjórnendur leita í grunninum ef ráða þarf í tímabundið starf og hafa samband við þá sem eru á skrá og koma til greina.
- Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega en farið er með þær sem trúnaðarmál.
- Þessar umsóknir gilda ekki um sumarstörf eða atvinnuátök.