Í Síðuskóla er laus til umsóknar 60% staða umsjónarkennara á yngsta stigi. Um er að ræða tímabundið starf skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT-skólafærni, er Grænfánaskóli og Réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.
Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfugreiningu.
Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is
Starfssvið:
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi umsjónarkennara.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veita Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri olofi@akmennt.is og deildarstjórarnir Helga Lyngdal helgal@akmennt.is og Anna María Þórhallsdóttir annamth@akmennt.is Einnig er hægt að leita upplýsinga í síma 462-2588.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2026