Company Description
Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að metnaðarfullum liðsmanni sem hefur brennandi áhuga á fjármálum sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi. Við vinnum með viðskiptavinum að fjölbreyttum verkefnum og veitum virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki.
Job Description
Helstu verkefni
Þetta er frábært tækifæri fyrir nýlega útskrifað metnaðarfullt fólk sem brennur fyrir rekstri og fjármálum fyrirtækja. Þú vinnur að og styður við fjölbreytt verkefni sviðsins. Þú lærir af víðtækri þekkingu og reynslu reyndra ráðgjafa. Meðal verkefna sviðsins sem þú munt fá innsýn og reynslu í eru
- Verðmöt og gerð fjárhagslíkana
- Kaup og sala fyrirtækja
- Samrunar og yfirtökur
- Úttektir á rekstri og fjármálum fyrirtækja
- Fjárhagslegar áreiðanleikakannir
- Rekstrarráðgjöf og rekstrarendurskipulagning
- Stefnumótun og stjórnendaráðgjöf
Qualifications
Bakgrunnur, reynsla og færni:
- Meistaragráða á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármála eða skyldra greina
- Gott vald á grunnstoðum fjármála, einhver reynsla af fjármálum og greiningu þeirra kostur
- Greiningarhæfni og færni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt
- Góð þekking á Microsoft Excel og PowerPoint
- Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
- Þú hefur gaman af því að takast á við og leysa áskoranir
- Vinnur vel sjálfstætt en virkar vel í teymi
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Additional Information
Starfsþróun þín
- Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“)
- Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
- Þú verður með reyndan coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
- Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum
- Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum
Að auki bjóðum við upp á:
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Styrki til foreldra
- Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi
- Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Starfsfólk ræktar fjölbreytt áhugamál saman þvert á félagið t.d. með hlaupahóp, fótbolta í hádeginu og að nýta leikjaherbergi til skemmtunar og samveru
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Nánari upplýsingar um starfið veitir Frímann Snær Guðmundsson(frimann@deloitte.is). Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok sumars 2026. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 25.maí nk.
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.