Reykjavíkurborg leitar eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund til þess að aðstoða borgarbúa og starfsfólk Reykjavíkurborgar við margvísleg málefni. Þjónusturáðgjafi er andlit Reykjavíkurborgar út á við og hagar vinnu sinni í samræmi við þjónustustefnu Reykjavíkurborgar.
Í þínu starfi sem þjónusturáðgjafi munt þú veita íbúum upplýsingar um þjónustu borgarinnar og kemur umsóknum, ábendingum og fyrirspurnum í réttan farveg. Þú munt nýta til þess fjölbreyttar samskiptaleiðir en þá helst í gegnum síma, netspjall, beiðnakerfi og afgreiðslu í Höfðatorgi og Ráðhúsi. Framlínan er hluti af þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar og við leggjum mikla áherslu á lausnamiðaða hugsun og notendamiðaða nálgun við úrlausn verkefna.
Sem þjónusturáðgjafi munt þú...
Sem þjónusturáðgjafi munt þú einnig vinna þvert á öll svið Reykjavíkurborgar og hafa mikil og góð samskipti við starfsfólk, íbúa og aðra hagsmunaaðila borgarinnar.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.
Þjónustu og nýsköpunarsvið hefur unnið til margra verðlauna eins og Nýsköpunarverðlaun hins opinbera í flokknum „Sveitafélag/stofnun ársins“ og til UT-verðlaun Ský 2025 í flokknum stafræn opinber þjónusta.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi hennar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Við bjóðum upp á
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Ingadóttir deildarstjóri framlínuþjónustu í gegnum tölvupóstfangið elisabet.ingadottir@reykjavik.is. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum ásamt frammistöðu í viðtölum. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi.
Vakin er athygli á stefnu um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er