Laus er til umsóknar 70% staða textílkennara í Síðuskóla. Um er að ræða ótímabundna stöðu og ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Við leitum að kennara sem hefur brennandi áhugi á textílmennt og handverki. Kennara sem er með lausnamiðaða hugsun og metnað til að efla textílkennslu í skólanum.
Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT-skólafærni, er Grænfánaskóli og Réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.
Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfugreiningu.
Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda og sýn hans á kennarastarfið og hvernig hann sér starf sitt sem kennara geta þróast.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veita Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri olofi@akmennt.is og deildarstjórarnir Helga Lyngdal helgal@akmennt.is og Anna María Þórhallsdóttir annamth@akmennt.is Einnig er hægt að leita upplýsinga í síma 462-2588.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2026