Akureyrarbær óskar eftir að ráða skíðasvæðaöryggisfulltrúa til starfa í Hlíðarfjalli sumarið 2026. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni eru:
- Umsjón og viðhald með hjólabrautum í hjólagarði.
- Eftirlit og merkingar á hjólaleiðum.
- Sinnir sjúkragæslu þ.m.t veiting fyrstu hjálpar og flutningur með sérhæfðum búnaði í hjólagarðinum og gerir skýrslur vegna slysa.
- Skýrslugerð og gerð verkferla, grunnþekking á notkun helstu forrita æskileg.
- Reynsla af því að vinna í hjólagarði nauðsynleg.
- Góð hjóla kunnátta æskileg.
- Almennt viðhald á skíðasvæðinu, lyftuviðhald, tækjaviðhald ofl.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Þekking á „down hill“ hjólabrautum. Uppsetning á brautum og viðhald.
- Grunnmenntun í sjúkraflutningum eða Wilderness first responder þjálfun æskileg.
- Enskukunnátta er skilyrði.
- Ökuréttindi nauðsynleg.
- Vinnan fer fram nærri einvörðungu úti við og í öllum veðrum og skilyrðum því er reynsla af útivist og hreysti nauðsynleg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður með tölvupósti brynjar.helgi@hlidarfjall.is og í síma 690-5209
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026.