Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar leitar að drífandi og faglegum einstaklingi með brennandi áhuga í starf verkefnastjóra garða og gróðurs á skrifstofu umhverfisgæða. Markmið starfsins er að stuðla að heilsusamlegum og aðlaðandi grænum svæðum í borginni, vernda náttúru og efla líffræðilegan fjölbreytileika í samræmi við stefnu borgaryfirvalda.
Skrifstofa umhverfisgæða starfar á vettvangi náttúruverndar, grænna svæða og líffræðilegs fjölbreytileika í borginni. Skrifstofan undirbýr stefnumótun, forathuganir og greiningar sem lúta að gróðri, görðum, leiksvæðum og náttúru og vinnur náið með öðrum deildum borgarinnar og ytri samstarfsaðilum að mótun og framkvæmd stefnu í borgarumhverfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun og eftirfylgni stefnu um gróður, græn svæði og líffræðilegan fjölbreytileika í borginni.
- Stjórnun og samhæfing verkefna sem lúta að undirbúningi, hönnun og þróun grænna svæða.
- Ráðgjöf, greiningar og umsagnir til annarra deilda borgarinnar, kjörinna fulltrúa og annarra hagaðila í málefnum gróðurs og náttúruverndar.
- Þverfagleg samvinna og þátttaka í starfshópum innan borgarinnar og með ytri samstarfsaðilum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í landslagsarkitektúr, skipulagsfræðum, land- eða náttúrufræði, umhverfisfræðum eða sambærileg menntun.
- Framhaldsmenntun á háskólastigi tengd málaflokki eða a.m.k. þriggja ára starfsreynsla.
- Frumkvæði og ástríða til að leiða málaflokkinn.
- Samskiptahæfni sem miðar að því að starfa í hóp og verkefnateymum.
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu.
- Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga.
- Íslenskukunnátta B2-C1 og enskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma .
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á algengum skrifstofuforritum.
Nánar um starfið
- Um er að ræða fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur B. Friðriksson með því að senda tölvupóst á gudmundur.b.fridriksson@reykjavik.is.
- Umsóknarfrestur er til og með 25.maí 2026.