Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugum og fjölhæfum hönnuði í samheldið teymi á samskiptasviði. Um er að ræða stöðu verkefnastjóra sem hefur umsjón með grafískri hönnun, ásýnd og útliti bæði innan og utan veggja HR. Viðkomandi er tengiliður í útlitstengdum málum við allar deildir og stoðsvið og ytri aðila sem koma að framleiðslu efnis.
Viðkomandi mun m.a. sinna gerð auglýsingaefnis fyrir alla miðla HR, hönnun á útliti fyrir sýningar og viðburði, gerð markaðsefnis í samstarfi við viðeigandi aðila, taka virkan þátt í kynningar- og markaðsstarfi, halda utan um allt prentað efni og vera leiðandi í ásýndarmálum háskólans bæði innan veggja hans og utan.
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur
Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Háskólans í Reykjavík, mannaudur@ru.is, og Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta, asthildurg@ru.is.
Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 4.300 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.