Við Lundarskóla eru lausar til umsóknar 60 - 100 % stöður stuðningsfulltrúa í skóla og starf í frístund. Um er að ræða tímabundnar stöður skólaárið 2026 - 2027.
Ráðið verður í störfin frá og með 5. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Leitað er að einstaklingum með metnað, sýna árangur í starfi, og leggja
áherslu á vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Í Lundarskóla er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.
Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is/
Helstu verkefni:
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja upplýsingar um fyrri starfsreynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að.
Starfsmenn skólans gegna starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum, og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Allar nánari upplýsingar veitir Maríanna Ragnarsdóttir skólastjóri í netfangi marianna@akmennt.is eða í síma 4624888.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð við umsóknir stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026