Vilt þú hafa áhrif á framtíð mannauðsmála í einu mikilvægasta innviðafyrirtæki landsins?
Við hjá Landsneti viljum vera í farabroddi í mannauðsmálum, þar sem gögn, tækni og mannleg nálgun vinna saman að því að skapa framúrskarandi starfsumhverfi. Við leitum að drífandi og tæknilega sterkum sérfræðingi sem hefur áhuga á að þróa og bæta mannauðsferla með framtíðina að leiðarljósi.
Starfið
Þú tekur virkan þátt í að móta og þróa mannauðsstarf til framtíðar, með áherslu á ráðningar, stafræna þróun, sjálfvirknivæðingu og gæðamál. Markmiðið er að bæta upplifun umsækjenda, starfsfólks og stjórnenda og auka skilvirkni í daglegu starfi.
Þú vinnur náið með mannauðsteymi og stjórnendum þvert á fyrirtækið að umbótum, þróun lausna og stefnumótun.
Helstu verkefni
Hæfni
Af hverju Landsnet?
Ef þú hefur áhuga á að þróa mannauðsmál til framtíðar, vinna með gögn og tækni og hafa raunveruleg áhrif, þá gætum við átt vel saman. Við bjóðum spennandi verkefni, rafmagnað umhverfi, frábært samstarfsfólk, góð tækifæri til starfsþróunar, dásamlegt mötuneyti og fjölbreytta styrki.
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2026
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir hjá VinnVinn, á audur@vinnvinn.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.