Við þurfum á góðu fólki að halda, að lágmarki 18 ára, til að koma til liðs við okkar frábæra hóp!
Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum, styttingu vinnuvikunnar og tilboði um námssamninga. Starfshlutfall er 100% og ráðið verður í stöðuna frá 4. ágúst 2026.
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi:
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026.
Leikskóli Seltjarnarness er sameinuð fag- og rekstrareining með um 210 börnum. Í skólanum eru 12 deildir á þremur starfsstöðvum, Mánabrekku og Sólbrekku við Suðurströnd og Stjörnubrekku á Skólabraut 1. Í skólanum er lögð áhersla á að börn fái tækifæri til að hjálpa sér sjálf eftir því sem þroski þeirra og geta leyfir og þau styrkt til sjálfshjálpar í öllum þáttum daglegs lífs. Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins því samkvæmt hugmyndafræði leikskóla lærir barn mest og best í leik og samskiptum við börn og fullorðna í frjóu og skapandi umhverfi. Í leikskólanum er lögð sérstök áhersla á tónlist.
Upplýsingar um starfið veita:
Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Setjarnarness, margret.gisladottir@seltjarnarnes.is
Elín Margrét Rafnsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, elin.m.rafnsdottir@seltjarnarnes.is
Linda Björg Birgisdóttir aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, linda.b.birgisdottir@seltjarnarnes.is