Í Síðuskóla er laus 100% staða íþróttakennara. Um er að ræða ótímabundið starf og ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT- skólafærni og er Grænfánaskóli og Réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er mikið unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.
Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún alla þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfu greiningu.
Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is
Menntunarkröfur:
Hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veita Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri olofi@akmennt.is, Helga Lyngdal deildarstjóri helgal@akmennt.isog Anna María Þórhallsdóttir deildarstjóri annamth@akmennt.is. Einnig er hægt að leita upplýsinga í síma 4622588.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026.