Sýn leitar að metnaðarfullum sérfræðingi til starfa við gagnavinnslu og greiningar a Upplýsingatæknisviði Sýnar. Viðkomandi mun vinna þvert á einingar innan félagsins og mun taka þátt í spennandi breytingavegferð. Ef þú ert með góða greiningarhæfni, tæknilæsi og lausnamiðaða hugsun þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur:
Hver erum við?
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 2. mars nk.
Nánari upplýsingar fást hjá Mannauði á mannaudur@syn.is.
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.