Við leggjum ríka áherslu á jákvætt hugarfar og glaðlega framkomu og við vinnum saman að því alla daga að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Helstu verkefni eru umhirða og umsjón með fjölbreyttu úrvali plantna Blómvals, vöruframsetning og sala, ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini.
Samkomulag með starfshlutfall yfir sumartíman með möguleika á áframhaldandi starfi næsta vetur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Hvetjum öll áhugasöm til að sækja um, óháð kyni.
Blómaval er stórmarkaður með allt fyrir blóma- og garðáhugafólk.
Hjá okkur eiga áhugamenn um ræktun að fá allt sem hugurinn girnist og faglega þjónustu.
Gildin okkar eru: Gleði - Fagmennska - Kraftur