Við óskum eftir leikskólakennara sem er tilbúinn til að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera partur af okkar faglega og skemmtilega samfélagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Viðkomandi vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hér er fyrir neðan er slóð á kynningu um leikskólann Bakkaborg Leikskólinn Bakkaborg - english on Vimeo
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og eða leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og áhugi í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Laun samkvæmt samningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika.
- Frítt fæði.
- Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík.
- Samgöngusamningur ef notaður er vistvænn ferðamáti að mestu leyti.
- Íþróttastyrkur eftir 6 mánuði í starfi.
- Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík.
- Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Elín Freyja Eggertsdóttir
Leikskólastjóri
Sími 4113240 og í tölvupósti bakkaborg@reykjavik.