Leitað er að áhugasömum og reynslumiklum einstakling í stöðu hópstjóra til að leiða NDT verkefni. Starfið felur í sér náið samstarf við aðrar deildir innan IMO, samskipti við viðskiptavini sem þurfa á NDT þjónustu að halda og samstarf við Aerospace Inspection Training Limited.
Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið sjálfstætt, sé með mjög góða samskiptahæfileika og hafi getu til að leiða teymi.
Um er að ræða framtíðarstarf í 100% starfshlutfalli. Áætlað er að hópstjóri með NDT hefji störf 1.september nk.
Helstu verkefni:
- Leiða hóp flugvirkja í samræmi við handbækur og regluverk IMO
- Úthluta verkefnum til starfsfólks með hliðsjón af hæfni og getu hvers og eins
- Tryggja að viðhaldsverkefni séu unnin á öruggan, faglegan og skilvirkan hátt
- Bera ábyrgð á reglubundinni upplýsingagjöf, endurgjöf og eftirfylgni við starfsfólk
- Bera ábyrgð á og stýra menntun NDT hóps.
- Bera ábyrgð á NDT gögnum, verkfærum og vinnuaðstöðu ásamt því að taka þátt í NDT úttektum.
Hæfnikröfur:
- Sveinspróf í flugvirkjun og B1 part 66 skírteini
- Að lágmarki fimm ára reynsla af NDT vinnu
- Að hafa náð viðeigandi NDT réttindum miðað við starfstíma í NDT
- Tegundaáritun er kostur
- Sterk öryggisvitund og skilningur á mikilvægi öryggis í viðhaldsumhverfi
- Mjög góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að leiða og styðja við teymið
- Mjög góð skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Áhugi á og geta til að stýra bæði hóp og einstaklingum
- Þekking á verklagi og notkun handbóka í viðhaldsstöð
- Góð tölvukunnátta
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknir óskast ásamt ferilskrá eigi síðar en 29. júní 2025.
Nánari upplýsingar veita
Pétur Kristinn Pétursson, Manager, peturp@icelandair.is
Sandra Björk Bjarkadóttir, People Manager, sandrabjorkb@icelandair.is