Öxarfjarðarskóli er fámennur, samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur, þar af 40 grunnskólanemendur. Í skólanum sem er staðsettur í Lundi í Öxarfirði fer fram metnaðarfullt skólastarf í teymum og starfað eftir uppeldisstefnunni Jákvæðum aga. Verið er að innleiða leiðsagnarnám/mat í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Umsjónarkennarar óskast til starfa í teymum á yngra og eldra stigi í samkennslu árganga. Leitað er sérstaklega eftir kennara með áherslu á íslensku- og dönskukennslu á mið- og unglingastigi í 100% stöðu og öðrum í almenna umsjónarkennslu í 100%.
Á yngsta stigi vantar umsjónarkennara í 100% stöðu. Þá óskast smíðakennari sem og íþrótta- og sundkennari í um 50% stöðu.
Menntunar- og hæfnikröfur
· Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
· Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
· Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
· Áhugi á að starfa með börnum
· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
· Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Hafa á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum nemenda
· Ábyrgð og stundvísi
Frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri: hrund@oxarfjardarskoli.is