Valhúsaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa eða starfsmanni með uppeldisfræðimenntun. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Í Valhúsaskóla eru um 250 nemendur í 7. – 10. bekk. Við skólann starfa um 50 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar – uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðanog er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi og upplýsingar um umsagnaraðila, á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til og með 1. maí 2026.
Upplýsingar um starfið veitir Helga Þórdís Jónsdóttir, skólastjóri; helgajo@seltjarnarnes.is
Sími: 5959 250