Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða í tvær stöður aðstoðarmatráða. Um 80% starfshlutfall er að ræða, frá 1. ágúst 2026.
Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem upp koma. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.
Leitað er að einstaklingum með mikinn metnað, sem hafa sýnt árangur í störfum sínum og sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við samstarfsfólk, stjórnendur skólans og fagaðila.
Starfslýsing
Í starfinu felst aðstoð við matreiðslu á öllum máltíðum dagsins á skólatíma, framreiðslu máltíða, aðstoða nemendur á matmálstímum og frágang. Heldur eldhúsi hreinu og snyrtilegu samkvæmt þrifaplani. Móttaka á vörum og frágangur.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur til að bera góða færni í mannlegum samskiptum, er með ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Reynsla af vinnu í mötuneyti eða af sambærilegu starfi er kostur. Hreint sakavottorð skv. lögum um grunnskóla.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Um er að ræða starfsheitið: Aðstoðarmatráður í leik- og grunnskóla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Trostan Agnarsson, trostan@varmahlidarskoli.is, 455 6023.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Upplýsingar um menntun og fyrri störf skulu fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.