Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða skólaliða í 80% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026. .
Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem upp koma. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem hefur sýnt árangur í störfum sínum og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við samstarfsfólk, stjórnendur skólans og fagaðila.
Starfslýsing
Um er að ræða gæslu nemenda í lengdri viðveru að loknum skólatíma og þrifum á húsnæði skólans. Starfsmaður tekur þátt í því uppeldis- og skólastarfi sem fer fram innan skólans. Hann gætir nemenda og leiðbeinir þeim í margskonar aðstæðum inni sem úti. Hann sinnir frímínútnagæslu úti og starfar því bæði innan og utan dyra. Starfsmaður sinnir daglegri ræstingu og heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri.
Hæfniskröfur
Jákvæðni og áhugi á starfi með börnum. Skólaliðar eru í mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir barna, þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist fljótt og vel við þegar þörf er á. Góð samstarfs- og samskiptafærni, sem og umhyggja eru miklir kostir í starfinu. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Leitað er eftir einstaklingum sem hefur til að bera góða færni í mannlegum samskiptum, er með ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Hreint sakavottorð skv. lögum um grunnskóla.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Um er að ræða starfsheitið: Skólaliði.
Nánari upplýsingar veitir Trostan Agnarsson, skólastjóri, trostan@varmahlidarskoli.is eða 455 6023.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Upplýsingar um menntun og fyrri störf skulu fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.