Staða húsvarðar við Varmahlíðarskóla er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu er felst í umsjón með húsnæði og lóð Varmahlíðarskóla ásamt Leikskólanum Birkilundi. Staðan er laus frá 1. ágúst 2026.
Húsvörður tekur þátt í því uppeldisstarfi sem fer fram innan skólans, ásamt öðrum umsjónarstörfum og ber að stuðla að því að umgengni um skólahúsnæðið verði ætíð sem best. Húsvörður sér um almenna húsvörslu, þ.e. daglegt viðhald, þrif, skipulagninga þrifa og umsjón. Í húsnæðinu er starfsemi Varmahlíðarskóla, frístund og tónlistarskólans. Einnig mun viðkomandi sinna viðhaldi í leikskólanum Birkilundi.
Húsvörður er í mikilvægu hlutverki sem fyrirmynd barna. Hann þarf að geta lesið í aðstæður og brugðist skjótt við. Góð samskiptafærni, umhyggja og áhugi á að starfa með börnum eru miklir kostir í starfinu.
Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem upp koma. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.
Leitað er að lausnamiðuðum og sveigjanlegum einstaklingi sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Um er að ræða starfsheitið Umsjónarmaður skólahúsnæðis.
Nánari upplýsingar veitir Trostan Agnarsson, skólastjóri, trostan@varmahlidarskoli.is eða 455 6023.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Prófskírteini og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.