Norðurþing óskar eftir öflugum aðila í starf félagsmálastjóra hjá sveitarfélaginu.
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með félagþjónustu Norðurþings en sveitarfélagið sinnir einnig félagsþjónustu við þrjú nágrannasveitarfélög á grunni þjónustusamninga. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun í félagsþjónustu á svæðinu. Undir þjónustuna fellur, félagsþjónusta, jafnréttis- og öldrunarmál auk málefna fatlaðra. Félagsmálastjóri heyrir undir sviðsstjóra velferðarsviðs.
Starfssvið og helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Norðurþing er víðfemt, fjölbreytt og metnaðarfullt sveitarfélag á Norðausturlandi með þrjá þéttbýliskjarna, Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn.
Norðurþing er góður búsetukostur, m.a. vegna góðra leik, grunn- og framhaldsskóla, fjölbreytts atvinnulífs og þjónustu, kraftmikils íþróttastarfs, auðugs félags- og menningarlífs, veðursældar og stórbrotinnar náttúrufegurðar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Allt áhugasamt fólk er hvatt til að sækja um starfið.
Starfshlutfallið er 100%. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir: Jón Höskuldsson sviðstjóri velferðarsviðs, jon@nordurthing.is