Auglýst er eftir starfsmanni á heimili fatlaðs fólks í Garðabæ, (á Álftanesi). Um er að ræða vaktavinnu í 40-100% starfshlutfalli frá 1. júní til 31. ágúst 2026. Starfsmaður vinnur eina eða tvær helgar í mánuði. Leitað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingi (20 ára og eldri) sem hefur áhuga á málefnum fatlaðs fólks.
Á vinnustaðnum starfa nú 13 manns í mismunandi starfshlutfalli. Í starfshópnum er lögð áhersla á jákvætt og lausnamiðað samstarf.
Um er að ræða lærdómsríkt og fjölbreytt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum og að jafnaði aðra hverja helgi, eða eina helgi í mánuði.
Starfað er samkvæmt lögum og reglugerðum sem tengjast málefnum fatlaðs fólks. Lögð er sérstök áhersla á hugmyndafræði um sjálfstætt líf og valdeflingu. Jafnframt eru höfð að leiðarljósi gildi Garðabæjar: Jákvæðni, fagmennska og áreiðanleiki
Helstu verkefni:
Menntun, reynsla og hæfni:
Umsóknarfestur er til og með 17. mars 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lilja Guðmundsdóttir forstöðumaður, í síma 5654525 eða með því að senda tölvupóst á liljag@gardabaer.is
Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.