Advania leitar að hugmyndaríkum og drífandi markaðsfulltrúa til að styrkja enn fremur markaðsteymið. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á viðburðum, góðum samskiptum og fjölbreyttum verkefnum sem snúa að því að skapa öfluga upplifun fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.
Helstu verkefni
Við leitum að einstaklingi sem...
Um markaðsteymi Advania
Í markaðsteymi Advania býr fjölbreytt reynsla, ólíkir styrkleikar og hæfileikar til að klára málin alla leið. Við rekum fjölnota stúdíó, skipuleggjum markaðsherferðir, útbúum auglýsingar og markaðsefni, höldum stóra og smáa viðburði, sinnum greiningu og veitum ráðgjöf, svo eitthvað sé nefnt. Teymið samanstendur af jákvæðum, öflugum og skapandi einstaklingum sem leggja mikinn metnað í skila öllum verkum 100%.
Hvers vegna Advania?
Hjá Advania færðu að taka þátt í lifandi og metnaðarfullum verkefnum, vinna með frábæru fólki og hafa raunveruleg áhrif á hvernig fyrirtækið birtist bæði inn á við og út á við. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, öfluga teymismenningu og faglegan vöxt.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Anita Brá Ingvadóttir, forstöðumaður Þjónustuupplifunar og markaðsmála, anita.bra.ingvadottir@advania.is / 4409000.